HAGSTÆÐUR VALKOSTUR FYRIR ÞIG
Líftrygging, sjúkdómatrygging, sjúkratrygging, slysatrygging og launavernd
Er FLM fyrir mig?
FLM er stéttarfélag stjórnenda og sérfræðinga og markmið þess er að styrkja stöðu félagsmanna á almennum vinnumarkaði og stuðla að tekjuöryggi þeirra.
FLM hentar vel þeim sem ekki eru í stéttarfélögum eða kjósa að standa utan hefðbundinna stéttarfélaga. FLM er óháð stéttarfélag sem félagar á hverjum tíma eiga.
-
80% af laununumí allt að 9 mánuði að loknum 3 mánaða biðtíma bóta
-
Börn félagsmannaLaunabætur í allt að 6 mánuði vegna veikinda og slysa barna
-
100%Fullkomin líftrygging fyrir félagsmenn
-
SjúkdómatryggingFyrir félagsmenn og börn þeirra
-
SjúkratryggingSjúkraörorkubætur fyrir félagsmenn
-
0,05% af launumFélagsgjaldið er einungis 0,05% af launum
-
SlysatryggingSlysaörorkubætur fyrir félagsmenn
Frétt
Nýgerðir kjarasamningar
Í tilefni af nýjum kjarasamningum nú í desember 2024 á almennum vinnumarkaði, viljum við vekja athygli á að kjarasamningur FLM og Samtaka atvinnulífsins er ótímabundinn. Sjá nánar samning FLM og SA.
Nútímalegt stéttarfélag
Bara það sem skiptir máli
Líftrygging, sjúkdómatrygging, sjúkratrygging, slysatrygging og launavernd.
Slysatrygging
Nýtt – Slysatrygging
Frá og með 1. nóvember 2024 njóta félagsmenn í FLM tryggingaverndar slysatryggingar
Hlutverk sjúkrasjóðs
Hagstæður valkostur fyrir þig
Launabætur
FLM greiðir launabætur af völdum slysa eða sjúkdóma
Launatrygging sjúkrasjóðs FLM greiðir launabætur af völdum slysa eða sjúkdóma (slysa- og sjúkradagpeninga), sem nema 80% af meðallaunum í allt að 9 mánuði.
Bætur greiðast þó ekki fyrr en 3 mánuðir eru liðnir frá því að sá atburður varð er leiddi til óvinnufærni, þ.e. óvinnufærni þarf að hafa varað samfleytt í 90 daga áður en bætur greiðast.
Launabætur greiðast enn fremur vegna slysa og veikinda barna í allt að 6 mánuði.
Hámark mánaðarlegra launabóta er 3.745.000 kr.
Greiðsla launabóta til hvers félagsmanns takmarkast að hámarki við 24 mánuði á hverju 10 ára tímabili.
Félag lykilmanna er nútímalegt stéttarfélag sem leggur áherslu á það sem skiptir máli; öflugan sjúkrasjóð sem veitir félagsfólki afkomubætur í veikinda- og slysatilfellum.
Hefðbundin stéttarfélög henta alls ekki öllum en það er öryggismál að hafa góða launavernd ef eitthvað kemur upp á.
Félag lykilmanna er öruggur og hagstæður valkostur fyrir þig, þar færðu líftryggingu, sjúkdómatryggingu, sjúkratryggingu og launavernd fyrir aðeins 0,05% af launum.
Dánarbætur
Það þarf ekki að fara fram sérstakt áhættumat vegna líftryggingar sjúkrasjóðsins.
Fjárhæð dánarbóta er háð aldri og launum félagsmanns á hverjum tíma, þó greiðir líftrygging dánarbætur að hámarki 25.900.000 kr., en að lágmarki 2.100.000 kr. Ekki þarf að fara fram sérstakt áhættumat vegna líftryggingar sjúkrasjóðsins.
Skilyrði þess að félagsmaður teljist njóta vátryggingarverndar í líftryggingu er að á liðnum 12 mánuðum fyrir bótaskyldan atburð hafi heildariðgjöld hans til FLM numið a.m.k. kr. 24.000 (lágmarksiðgjald). Fjárhæð þessi breytist árlega miðað við launavísitölu (grunnur 1010,0 stig ágúst 2024). Hafi vátryggður verið félagsmaður í FLM skemur en 12 mánuði reiknast lágmarksiðgjaldið hlutfallslega.
SJÚKDÓMABÆTUR
Það þarf ekki að fara fram sérstakt áhættumat vegna sjúkdómatryggingar sjúkrasjóðsins.
Fjárhæð bóta úr sjúkdómatryggingunni er háð aldri og launum félagsmanns á hverjum tíma, þó greiðir sjúkdómatrygging bætur að hámarki 15.800.000 kr., en að lágmarki 1.100.000 kr. Ekki þarf að fara fram sérstakt áhættumat vegna sjúkdómatryggingar sjúkrasjóðsins.
Skilyrði þess að félagsmaður teljist njóta vátryggingarverndar í sjúkdómatryggingu er að á liðnum 12 mánuðum fyrir bótaskyldan atburð hafi heildariðgjöld hans til FLM numið a.m.k. kr. 24.000 (lágmarksiðgjald). Fjárhæð þessi breytist árlega miðað við launavísitölu (grunnur 1010,0 stig ágúst 2024). Hafi vátryggður verið félagsmaður í FLM skemur en 12 mánuði reiknast lágmarksiðgjaldið hlutfallslega.
Örorkubætur vegna sjúkdóms
Það þarf ekki að fara fram sérstakt áhættumat vegna sjúkratryggingar sjúkrasjóðsins.
Fjárhæð örorkubóta úr sjúkratryggingunni er háð aldri og launum félagsmanns á hverjum tíma, þó greiðir sjúkratrygging bætur að hámarki 20.300.000 kr., en að lágmarki 1.600.000 kr. Ekki þarf að fara fram sérstakt áhættumat vegna sjúkratryggingar sjúkrasjóðsins.
Bent skal á að hafi félagsmaður fengið greiddar bætur úr hópsjúkdómatryggingu FLM vegna sama sjúkdóms eða eigi rétt til slíkra bóta skulu bætur úr sjúkratryggingunni lækka sem nemur helmingi af bótum sjúkdómatryggingarinnar.
Skilyrði þess að félagsmaður teljist njóta vátryggingarverndar í sjúkratryggingu er að á liðnum 12 mánuðum fyrir bótaskyldan atburð hafi heildariðgjöld hans til FLM numið a.m.k. kr. 24.000 (lágmarksiðgjald). Fjárhæð þessi breytist árlega miðað við launavísitölu (grunnur 1010,0 stig ágúst 2024). Hafi vátryggður verið félagsmaður í FLM skemur en 12 mánuði reiknast lágmarksiðgjaldið hlutfallslega.
Örorkubætur vegna slyss
Það þarf ekki að fara fram sérstakt áhættumat vegna slysatryggingar sjúkrasjóðsins.
Fjárhæð örorkubóta úr slysatryggingunni er háð launum félagsmanns á hverjum tíma, þó greiðir slysatrygging bætur að hámarki 20.300.000 kr., en að lágmarki 1.600.000 kr. Ekki þarf að fara fram sérstakt áhættumat vegna slysatryggingar sjúkrasjóðsins.
Bent skal á að hafi félagsmaður fengið greiddar bætur úr hópsjúkdómatryggingu FLM vegna sama slyss eða eigi rétt til slíkra bóta skulu bætur úr slysatryggingunni lækka sem nemur helmingi af bótum sjúkdómatryggingarinnar.
Skilyrði þess að félagsmaður teljist njóta vátryggingarverndar í slysatryggingu er að á liðnum 12 mánuðum fyrir bótaskyldan atburð hafi heildariðgjöld hans til FLM numið a.m.k. kr. 24.000 (lágmarksiðgjald). Fjárhæð þessi breytist árlega miðað við launavísitölu (grunnur 1010,0 stig ágúst 2024). Hafi vátryggður verið félagsmaður í FLM skemur en 12 mánuði reiknast lágmarksiðgjaldið hlutfallslega.
Aðild að félaginu
Skráðu þig hér
Að skrá sig í FLM er ódýr kostur, aðeins 0.05 % mánaðarlegt félagsgjald sem greiðist af launþega og 1% sjúkrasjóðsgjald sem greiðist af vinnuveitenda.
Sækja um aðild