Fréttabréf

Starfsemin


FLM er félag sérfræðinga og stjórnenda. Megin verkefni félagsins hefur verið að byggja upp sjúkrasjóð í þeim tilgangi að tryggja afkomuöryggi félagsmanna í veikindum eða í kjölfar slysa ásamt að veita félagsmönnum líftryggingu og sjúkdómatryggingu. Fjöldi greiðandi félagsmanna var 2.160 hinn 1. ágúst 2024.


Aukin tryggingavernd sjúkrasjóðs FLM – Óbreytt félagsgjald

Frá og með 1. nóvember 2024 verða þær breytingar á tryggingavernd sjúkrasjóðs FLM, að ný trygging, slysatrygging tekur gildi hjá félagsmönnum. Þrátt fyrir þessa auknu tryggingavernd helst félagsgjaldið óbreytt hjá FLM.

Aðrar vátryggingar sjúkrasjóðs FLM verða áfram til staðar, en þær eru:

  • -  Launatrygging
  • -  Líftrygging
  • -  Sjúkdómatrygging
  • -  Sjúkratrygging


Slysatrygging – ný trygging

Frá og með 1. nóvember 2024 njóta félagsmenn í FLM tryggingaverndar slysatryggingar.

Slysatryggingin greiðir örorkubætur vegna varanlegrar færniskerðingar vátryggðs af völdum slyss. Örorkubætur greiðast í hlutfalli við metna örorku.

Fjárhæð örorkubóta úr slysatryggingu er háð aldri og launum félagsmanns á hverjum tíma, þó greiðir slysatryggingin bætur að hámarki 19.400.000 kr., en að lágmarki 1.300.000 kr. Ekki þarf að fara fram sérstakt áhættumat vegna slysatryggingar sjúkrasjóðsins.

Vátryggðir eru félagsmenn í Félagi lykilmanna, sem uppfylla það skilyrði að hafa verið að fullu vinnufærir síðastliðna 3 mánuði fyrir töku tryggingarinnar. Félagsmenn sem ganga í félagið eftir gildistöku tryggingarinnar teljast vátryggðir, hafi þeir verið að fullu vinnufærir síðastliðna 3 mánuði fyrir inngöngu.

Bent skal á að hafi félagsmaður fengið greiddar bætur úr hópsjúkdómatryggingu FLM vegna sama slyss eða eigi rétt til slíkra bóta skulu bætur úr slysatryggingunni lækka sem nemur helmingi af bótum sjúkdómatryggingarinnar.

Slysatryggingin undanskilur hvers kyns slysaafleiðingar eða önnur tilvik, sem einkenni voru komin fram um, áður en félagsmaður gekk inn í vátryggingarsamninginn með félagsaðild að Félagi lykilmanna og félagsmanni var eða mátti vera kunnugt um, hvort sem formleg greining hafi átt sér stað eða ekki.

Við hvetjum félagsmenn til þess að kynna sér vel vátryggingarskilmála slysatryggingarinnar sem aðgengilegir eru á heimasíðu FLM www.flm.is.

Upplýsingar um bótafjárhæðir örorkubóta í slysatryggingunni má finna í reiknivél á heimasíðu FLM www.flm.is.


Útgreiðsla bóta hjá FLM


Nokkur reynsla er nú komin á tryggingavernd sjúkrasjóðs FLM. Á árinu 2022 voru greiddar bætur vegna fimmtán tilvika og á árinu 2023 vegna tíu tilvika. Gera má ráð fyrir að fjöldi tilvika muni aukast eftir því sem fjöldi félagsmanna vex.


Dæmi um bætur hjá FLM

Við hvetjum félagsmenn til þess að kynna sér reiknivél bótafjárhæða á heimasíðu FLM www.flm.is .

Eftirfarandi er dæmi um bætur sem 35 - 39 ára félagsmaður með kr. 1.000.000 á mánuði á rétt á úr sjúkrasjóði FLM – bendum á að bætur úr sjúkrasjóðnum eru háðar aldri og launum félagsmanns:

  • -  Launatrygging:
    80% af launum í allt að 9 mánuði (biðtími 3 mánuðir)
  • -  Launatrygging vegna veikinda barns:
    80% af launum í allt að 6 mánuði (biðtími 1 mánuður)
  • -  Líftrygging:
    kr. 15.730.337
  • -  Sjúkdómatrygging:
    kr. 5.714.286
  • -  Sjúkratrygging:
    kr. 10.549.45
  • -  Slysatrygging: kr. 9.082.000

  • Sé félagsmaður yngri en 35 ára greiðast hærri bætur, en lægri bætur greiðast til félagsmanna 40 ára og eldri – Uppfærð reiknivél FLM á www.flm.is með hinni nýju slysatryggingu verður aðgengileg frá og með 15. október n.k.


Breyting á vátryggingaskilmálum sjúkrasjóðs FLM


Frá og með 1. nóvember 2024 taka gildi eftirfarandi breytingar á vátryggingaskilmálum sjúkrasjóðs FLM.

Líftrygging:

  • -  Undanþáguákvæði 3. gr. skilmálanna hefur verið breytt og undanskilur nú alfarið andlát af völdum atvika eða sjúkdómsástands sem voru til komin og hinum vátryggða var eða mátti vera kunnugt um áður en vátryggingin tók gildi eða vátryggði gekk inn í Félag lykilmanna. Í eldri skilmálum takmarkaðist undanþáguákvæðið við fyrstu 48 mánuðina frá upphafi hópaðildar félagsmanns og því er hér um að ræða þrengingu á skilmálunum.
  • -  Við hvetjum félagsmenn til þess að kynna sér vel vátryggingarskilmála hóplíftryggingarinnar sem aðgengilegir eru á heimasíðu FLM www.flm.is.

Sjúkdómatrygging:

  • -  Undanþáguákvæði 9. gr. skilmálanna hefur verið breytt og undanskilur nú alfarið afleiðingar sjúkdóma, sem sýnt höfðu einkenni áður en vátryggingin tók gildi eða vátryggði gekk inn í hóptrygginguna og honum var eða mátti vera kunnugt um, hvort sem formleg greining hafi átt sér stað eða ekki. Vátryggingin tekur heldur ekki til afleiðinga slysa eða aðgerða sem áttu sér stað fyrir þann tíma. Í eldri skilmálum takmarkaðist undanþáguákvæðið við fyrstu 48 mánuðina frá upphafi hópaðildar félagsmanns og því er hér um að ræða þrengingu á skilmálunum.
  • -  Við hvetjum félagsmenn til þess að kynna sér vel vátryggingarskilmála hópsjúkdómatryggingarinnar sem aðgengilegir eru á heimasíðu FLM www.flm.is.

Sjúkratrygging:

  • -  Undanþáguákvæði 3. gr. a. liðar skilmálanna hefur verið breytt og undanskilur nú alfarið hvers kyns sjúkdóma sem sýnt höfðu einkenni áður en vátryggingin tók gildi eða vátryggður gekk inn í hóptrygginguna og honum var eða mátti vera kunnugt um, hvort sem formleg greining hafi átt sér stað eða ekki. Í eldri skilmálum takmarkaðist undanþáguákvæðið við fyrstu 48 mánuðina frá upphafi hópaðildar félagsmanns og því er hér um að ræða þrengingu á skilmálunum.
  • -  Við hvetjum félagsmenn til þess að kynna sér vel vátryggingarskilmála hópsjúkratryggingarinnar sem aðgengilegir eru á heimasíðu FLM www.flm.is.


Aldursmörk í tryggingavernd sjúkrasjóðs FLM


Aldursmörk í tryggingavernd sjúkrasjóðs FLM eru sem hér greinir:

Launatrygging:


Launatryggingin fellur úr gildi í lok þess árs, sem félagsmaður nær 66 ára aldri. Vátryggingin tekur ekki til félagsmanna yngri en 18 ára. Hámarksaldur við inngöngu í vátrygginguna er 64 ár.

Líftrygging:


Líftryggingin fellur úr gildi í lok þess árs, sem félagsmaður nær 66 ára aldri. Vátryggingin tekur ekki til félagsmanna yngri en 18 ára. Hámarksaldur við inngöngu í vátrygginguna er 64 ár.

Sjúkdómatrygging:


Sjúkdómatryggingin fellur úr gildi þegar félagsmaður verður 60 ára (miðast við afmælisdag). Vátryggingin tekur ekki til félagsmanna yngri en 18 ára. Sjúkdómavernd barna félagsmanna gildir aðeins fyrir börn á aldrinum 3ja mánaða til 18 ára.

Sjúkratrygging:


Sjúkratryggingin fellur úr gildi þegar félagsmaður verður 60 ára (miðast við afmælisdag). Vátryggingin tekur ekki til einstaklinga yngri en 18 ára.

Slysatrygging:


Slysatryggingin fellur úr gildi í lok þess árs, sem félagsmaður nær 66 ára aldri. Vátryggingin tekur ekki til félagsmanna yngri en 18 ára. Hámarksaldur við inngöngu í vátrygginguna er 64 ár.


Að endingu viljum við hvetja félagsmenn til þess að benda vinum og vandamönnum á kosti þess að ganga í FLM.

Sækja um aðild