Félag lykilmanna tryggir réttindi þeirra félagsmanna sem fara á atvinnuleysisbætur eða í fæðingarorlof, þannig að FLM leggur til 1% sjúkrasjóðsgjald í samræmi við greitt félagsgjald af greiðslum frá Atvinnuleysistryggingasjóði eða frá Fæðingarorlofssjóði. Samkvæmt skilmálum sjúkrasjóðs FLM miðast greiðslur úr honum við 80% af meðal mánaðarlaunum félagsmanns síðustu 12 mánuði fyrir tjónsatburð, hvort sem það eru laun eða bætur vegna atvinnuleysis eða fæðingarorlofs.
Kjarasvið FLM – Kröfulýsing vegna gjaldþrots vinnuveitanda
Félagsmenn FLM geta leitað til félagsins varðandi aðstoð við kröfulýsingu vegna gjaldþrots vinnuveitanda. Fyrir þá sem þess óska mun FLM lýsa inn kröfum í þrotabúið og til Ábyrgðasjóðs launa. Til þess að FLM geti tekið slík mál til skoðunar þarf að senda tölvupóst á kjarasvid@flm.is með eftirfarandi upplýsingum:
- Nafn og kennitala félagsmanns, starfsheiti, farsímanúmer og tölvupóstfang
- Nafn og kennitala vinnuveitanda og hvenær félagsmaður hóf þar störf
- Afrit af ráðningarsamningi, síðustu 6 launaseðlum og aðrar upplýsingar sem skipta máli við útreikning á kröfu s.s. ónýtt orlof eða önnur hlunnindi sem ekki eru tilgreind í ráðningarsamningi
- Hvort félagsmaður hafi verið í stjórn fyrirtækisins, hluthafi eða framkvæmdastjóri.
- Hvort félagsmaður er nákominn forsvarsmönnum fyrirtækisins
Bent skal á að vegna hins lága félagsgjalds hjá FLM takmarkast árlegur stuðningur FLM við hvern og einn félagsmann við allt að 3 klst. vinnu lögfræðings. Verði óskað eftir frekari stuðningi við áframhald máls þarf að leggja það fyrir stjórn FLM.
Kjarasvið FLM – Ágreiningur við vinnuveitanda
Félagsmenn FLM geta leitað til félagsins vegna mála er varða ágreining við vinnuveitanda. Til þess að FLM geti tekið slík mál til skoðunar þarf að senda FLM tölvupóst á kjarasvid@flm.is með greinargóðri lýsingu á málsatvikum.
Bent skal á að vegna hins lága félagsgjalds hjá FLM takmarkast árlegur stuðningur FLM við hvern og einn félagsmann við allt að 3 klst. vinnu sérfræðings. Verði óskað eftir frekari stuðningi við áframhald máls þarf að leggja það fyrir stjórn FLM.
Útgreiðsla bóta hjá FLM
Nokkur reynsla er nú komin á tryggingavernd sjúkrasjóðs FLM. Á árinu 2018 voru greiddar bætur vegna 6 tilvika og á árinu 2019 vegna 4 tilvika. Gera má ráð fyrir að fjöldi tilvika muni aukast eftir því sem fjöldi félagsmanna vex.