Slysatrygging – ný trygging

Frá og með 1. nóvember 2024 njóta félagsmenn í FLM tryggingaverndar slysatryggingar

Frá og með 1. nóvember 2024 njóta félagsmenn í FLM tryggingaverndar slysatryggingar.

Slysatryggingin greiðir örorkubætur vegna varanlegrar færniskerðingar vátryggðs af völdum slyss.
Örorkubætur greiðast í hlutfalli við metna örorku.

Fjárhæð örorkubóta úr slysatryggingu er háð aldri og launum félagsmanns á hverjum tíma, þó
greiðir slysatryggingin bætur að hámarki 19.400.000 kr., en að lágmarki 1.300.000 kr. Ekki þarf að
fara fram sérstakt áhættumat vegna slysatryggingar sjúkrasjóðsins.

Vátryggðir eru félagsmenn í Félagi lykilmanna, sem uppfylla það skilyrði að hafa verið að fullu
vinnufærir síðastliðna 3 mánuði fyrir töku tryggingarinnar. Félagsmenn sem ganga í félagið eftir
gildistöku tryggingarinnar teljast vátryggðir, hafi þeir verið að fullu vinnufærir síðastliðna 3 mánuði
fyrir inngöngu.

Bent skal á að hafi félagsmaður fengið greiddar bætur úr hópsjúkdómatryggingu FLM vegna sama
slyss eða eigi rétt til slíkra bóta skulu bætur úr slysatryggingunni lækka sem nemur helmingi af
bótum sjúkdómatryggingarinnar.

Slysatryggingin undanskilur hvers kyns slysaafleiðingar eða önnur tilvik, sem einkenni voru komin
fram um, áður en félagsmaður gekk inn í vátryggingarsamninginn með félagsaðild að Félagi
lykilmanna og félagsmanni var eða mátti vera kunnugt um, hvort sem formleg greining hafi átt sér
stað eða ekki.

Við hvetjum félagsmenn til þess að kynna sér vel vátryggingarskilmála slysatryggingarinnar sem
aðgengilegir eru á heimasíðu FLM.

Upplýsingar um bótafjárhæðir örorkubóta í slysatryggingunni má finna í reiknivél.

Sækja um aðild